COOLNESS

The truth is in between the 1st and the 40th drink!

þriðjudagur, febrúar 01, 2011

Í dag var ég stödd í strætóskýli, ég og einhver önnur stelpa. Þá kom maður með ljóta húfu sem þóttist vera að bíða eftir strætó í smá stund áður en hann spurði okkur hvort við hefðum áhuga á að fá nafnspjald. Stelpan varð fyrri til að neita. Svo spurði hann mig, sagði að það væri svona heimasíða á þessu nafnspjaldi sem væri áhugaverð. Ég leit á nafnspjaldið og sá eitthvað um einhverja kirkju og varð fljót að segja nei.
"Þú ert ekkert að velta þessu fyrir þér?" spurði hann þá.
"NEI!!" sagði ég ákveðið enda sérþjálfuð í samskiptafræði og passaði mig að mynda ekki augnsamband.
Þá sneri hann sér að stelpunni aftur og spurði hana:
"Er þú ekki trúður?!"

D.Ó.N.I.

föstudagur, janúar 07, 2011

Það er mjög gott og kósí að drekka jólabjór í desember.
En það er óþægilega óviðeigandi og vont að drekka jólabjór í janúar.

fimmtudagur, október 21, 2010

Ég var alveg búin að gleyma hvernig veturinn er.
Það er skítkalt.
Mér finnst það ekkert sérstakt.

þriðjudagur, júlí 20, 2010

Í gær ákvað ég að fara í sólbað því ég fékk að fara fyrr heim úr vinnunni. Fyrir utan húsið var barn, gestabarn hér í húsinu, sem hafði fengið að leika sér með vatnsslöngubyssuna í garðinum. Barnið sprautaði á blómin og grasið og stéttina og svo á mig þar sem ég sat í makindum í sólbaði. Ég skammaði barnið eins og lög gera ráð fyrir og mamma barnsins skammaði það líka. Svo hélt ég áfram í sólbaði. Eftir smá stund sprautaði barnið aftur á mig. Ég skammaði það aftur og líka mamman. Svo var orðið svo heitt að ég fór inn og þá sá ég að barnið var að spúla húsið og sólstólana mína. Ég ákvað að það ætti ekki að láta barnið vinna þessa orustu svo ég fór niður og skrúfaði fyrir. Þegar ég kom upp aftur stóð barnið í garðinum og orgaði og vældi "skrúfa... skrúfa frá...!" Það á ekki að láta ofbeldisbörn á leið til glötunar að komast upp með hvað sem er.

fimmtudagur, júlí 15, 2010

Ég er mjög heppin í spilum og mjög óheppin í ástum. Það er bara verst hvað mér finnst leiðinlegt að spila.

laugardagur, júlí 10, 2010


Ron Telesky! Tvær góðar!


Pizzan mín

Um daginn var ég í Berlín og þar leiddi Edda mig á pizzustað sem heitir Ron Telesky! Kandaískar pizzur með alls konar skemmtilegu á! Ég fékk mér pizzu með sauerkraut, skinku og kartöflum toppað með sinnepi. Það kom á óvart hvað þetta var góð pizza, þvílíkt lostæti!
Fór svo í bónus um daginn og sá þá sauerkraut í einni hillunni þar. Þar kviknaði hugmyndin að því að reyna að búa til eins pizzu og á Ron Telesky. Notaði hamborgarhrygg, kartöflur og sauerkrautið góða ásamt örlitlum osti. Toppaði þetta með hunangsdijonsinnepi! Mæli með þessu!
Á Ron Telesky var líka hægt að fá chilli maple syrup á pizzurnar. Það er líka spurning um að prófa það bráðum!

sunnudagur, júní 27, 2010

Það er merki um þroska þegar maður getur borðað ost sem lyktar eins og prump og finnst hann góður.